Elsa Guðrún Jóhannesdóttir hefur hafið störf sem fjármálastjóri Árnastofnunar.
Elsa Guðrún er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað sem deildarstjóri fjármála á velferðarsviði Reykjavíkurborgar undanfarin misseri. Hún var fjármálastjóri Samkeppniseftirlitsins árin 2012–2016 og starfaði einnig við fjármál hjá Nets A/S í Danmörku 2016–2018.
Við bjóðum Elsu Guðrúnu velkomna til starfa.