Skip to main content

Fréttir

Nýr fjármálastjóri Árnastofnunar

Jóhann Karl Reynisson
Jóhann Karl Reynisson
SSJ

Jóhann Karl Reynisson er nýr fjármálastjóri Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Jóhann Karl er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og MS-gráðu í Finance and Strategic Management frá Copenhagen Business School. Hann kemur til Árnastofnunar eftir að hafa starfað sem verkefnisstjóri fjármála hjá Verkfræði- og náttúruvísindasviði HÍ en starfaði áður við fjármálaráðgjöf hjá Deloitte.

Við bjóðum Jóhann velkominn til starfa.