Bókin The Sacred and the Profane in premodern Icelandic literature, ca. 1500–1800 er komin út hjá De Gruyter. Ritstjórar eru Margrét Eggertsdóttir, Katelin Marit Parsons og Aðalheiður Guðmundsdóttir sem jafnframt rita inngang.
Í bókinni eru 12 greinar byggðar á fyrirlestrum sem fluttir voru á ráðstefnu sem haldin var í Reykjavík árið 2022. Ráðstefnan var liður í rannsóknarverkefninu Hið heilaga og hið vanheilaga í íslenskum bókmenntum síðari alda sem styrkt var af Rannís á árunum 2021–2024.
Viðfangsefni verkefnisins var að skoða samspilið milli trúarlegra og veraldlegra þátta í handritum og prentuðum bókmenntum á ýmsum tímabilum bókmenntasögunnar.
Bókinni er skipt niður í þrjá hluta sem nefnast Constructing Literature, Between the Sacred and the Profane og Materiality and Mediality. Hún kemur út í ritröðinni The Northern Medieval World: On the margins of Europe.
Bókina má panta hér: https://doi.org/10.1515/9781501518508
Í bókinni eru tekin fyrir ólík og fjölbreytt bókmenntaverk og fjallað um viðtökur þeirra á tímabili í sögu Íslands sem lítið hefur verið rannsakað.
Hin hefðbundna tvískipting texta í trúarlega og veraldlega er tekin til endurskoðunar í þeim tilgangi að nálgast verkin á heildstæðari hátt þannig að hægt sé að greina hið heilaga í hinu vanheilaga og öfugt.
Tólf fræðimenn eru höfundar greinanna þar sem ýmsar bókmenntagreinar, svo sem þulur, rímur og sálmar, koma við sögu.
Í inngangi bókarinnar er fjallað ítarlega um bókmenntalega og menningarlega þróun á Íslandi eftir 1500 um leið og gefin er innsýn í bókmenntaástand á Íslandi eftir siðaskipti, bæði hvaða mynd hefur verið dregin upp af því og hvernig það hefur verið túlkað.
Höfundar eru:
Haraldur Hreinsson
Katelin Marit Parsons
Alice Bower
Pétur Húni Björnsson
Natalie M. Van Deusen
Philip Lavender
Þórunn Sigurðardóttir
Margrét Eggertsdóttir
Aðalheiður Guðmundsdóttir
Ermenegilda Müller
Yelena Sesselja Helgadóttir
Lea D. Pokorny