Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku hlaut Viðurkenningu Hagþenkis árið 2025. Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir er höfundur fræðitextans og bjó til útgáfu þrjár gerðir Mábilar rímna og Söguna af Mábil sterku og Móbil systur hennar.
Konungsdóttirin Mábil sterka frá Vallandi er öllum fremri í riddaralistum. Hún drýgir miklar hetjudáðir í bardögum og beitir óhefðbundnum aðferðum við að klekkja á helsta óvini sínum, Medeu drottningu í Grikklandi. Sömuleiðis ver hún Móbil systur sína frækilega gegn ásókn karla sem vilja kvænast henni og heimta þannig krúnuna.
Þrúður Þorsteinsdóttir, biskupsfrú á Hólum, fól Árna Magnússyni að leita uppi Rímurnar af Mábil sterku og varð það til þess að þær varðveittust í mörgum uppskriftum. Rímurnar hafa kynferðislegan undirtón og hafa varla verið taldar kristilegur kveðskapur. Í þessari bók er gerð grein fyrir leit Árna að handritunum og þrjár gerðir rímnanna eru birtar, sú elsta frá fimmtándu öld, önnur frá þeirri sautjándu og sú yngsta frá hinni átjándu. Rímurnar eru birtar með nútímastafsetningu og skýringum en einnig með stafsetningu handritanna. Í bókinni er einnig birt saga af Mábil frá nítjándu öld.
Mábil var ein af fræknustu hetjum íslenskra bókmennta í 500 ár en þetta er í fyrsta skipti sem frásagnirnar um hana birtast á prenti.
Í rökstuðningi dómnefndar segir:
„Við völdum þetta rit umfram önnur vegna þess að hér er brotið blað í rannsóknum á rímum hér á landi. Vinnubrögðin eru einstaklega vönduð og höfundur hefur leitað víða fanga við að opna fyrir nútímafólki heim sem hefur verið okkur flestum lokaður. Hún hefur safnað saman ómetanlegum upplýsingum um þessar einstöku rímur – og um leið opnar hún augu lesenda fyrir hversu flókið ferli svona rannsókn getur verið. Rímur af Mábil sterku hafa lengi legið óbættar hjá garði og hafa hvorki verið rannsakaðar né gefnar út fyrr en nú og þótt það sama megi segja um fleiri rímur er sérstaða þessara rímna sú að kona er aðalsöguhetjan og því má segja að þetta sé einnig umtalsvert innlegg í hina vanrannsökuðu sögu kvenna í íslenskum bókmenntum.“
Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir lauk BA-prófi í íslensku frá Heimspekideild Háskóla Íslands 1993 og meistaraprófi í íslenskum bókmenntum frá sama skóla árið 2004. Hún starfaði fyrir Stofnun Árna Magnússonar frá 1993 til 2002, hafði umsjón með skrifstofu stofnunarinnar og vann margs konar störf við bókaútgáfu, yfirlestur og tölvuvinnslu. Síðan hefur hún rekið ferðaþjónustu á Leirubakka á Landi og staðið þar fyrir margs konar menningarstarfi. Valgerður hefur jafnframt stundað ritstörf, skrifað greinar um bókmenntir og þjóðlegan fróðleik. Hún hefur einnig birt ljóð í tímaritum og árið 2020 gaf hún út ljóðabókina Öldufax, sjónarrönd af landi.
Nánar um Viðurkenningu Hagþenkis.
