Skip to main content

Fréttir

Mannamál: Pistlar í tilefni af viku íslenskrar tungu

Veftímaritið Mannamál fagnaði viku íslenskrar tungu með því að gefa út einn pistil á dag frá og með degi íslenskrar tungu mánudaginn 16. nóvember og alla vikuna.

Vefurinn lá niðri síðustu daga vegna netárása en er kominn aftur í loftið.

Hér fyrir neðan er yfirlit yfir pistlana. Eins og sjá má er efni þeirra afar fjölbreytilegt:

16. nóvember
Helga Hilmisdóttir
Íslenska í Vesturheimi á tímum seinni heimsstyrjaldar – rýnt í fundargerðarbók Þjóðræknisfélags Íslendinga

17. nóvember
Ágústa Þorbergsdóttir
Áhrif skáldverka Halldórs Laxness á íslenska nafnahefð

18. nóvember
Ari Páll Kristinsson
Epli [komma] appelsínur [oxfordkomma?] og bananar

19. nóvember
Branislav Bédi
Áhrifavaldar á sviði tungumála læra íslensku

20. nóvember
Steinþór Steingrímsson
Hættulegur leikur – um íslenska titla á erlendum kvikmyndum

Nánar um Mannamál

Mannamál er gefið út á vegum íslenskusviðs Árnastofnunar en höfundar efnis koma úr ýmsum áttum. Allir eiga það sameiginlegt að vinna störf þar sem tungumálið er í brennidepli, til dæmis við málfræðirannsóknir, tungumálakennslu, máltækni og stefnumótun sem varðar íslensku. 

Vefsíða Mannamáls