Skip to main content

Fréttir

Íslenskukennsla í Winnipeg


Vakin er athygli á að auglýst hefur verið laus til umsóknar staða kennara í íslensku við Manitobaháskóla í Kanada. Ráðið verður í stöðuna til eins árs frá 1. ágúst eða 1. september nk. Kennaranum er ætlað að kenna íslenskt nútímamál. Kennsluskyldan er 18 tímar á viku. Umsækjendur skulu a.m.k. hafa lokið M.A.-prófi í íslensku eða sambærilegu prófi og hafa reynslu af kennslu á háskólastigi.

Umsóknarfrestur er til 6. júlí nk. Umsóknir með ferilskrá og fylgigögnum sendist til:
 

Dr. Mark Joyal
Department of Classics
University of Manitoba
Winnipeg, MB, Canada
R3T 2M8


Dr. Mark Joyal veitir einnig frekari upplýsingar um starfið. Netfang hans er: m_joyal [hjá] umanitoba.ca