Skip to main content

Fréttir

Íslenskukennari við Sorbonne-háskóla í París

Byggingar og opið svæði við Sorbonneháskóla

Staða íslenskukennara við Sorbonne-háskóla í París er laus til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. september 2022. Ráðning er tímabundin til tveggja ára með möguleika á endurráðningu til jafnlangs tíma. Krafist er MA-prófs í íslensku eða tengdum greinum. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið kennararéttindanámi og/eða hafi reynslu af því að kenna íslensku sem annað eða erlent mál. Kunnátta í frönsku er nauðsynleg. Nær eingöngu er um íslenskukennslu að ræða á BA-stigi en umsækjendur þurfa einnig að geta kennt íslenskar bókmenntir og fjallað um íslenskt samfélag. Æskilegt er að umsækjendur hafi búið á Íslandi undanfarin ár.

Umsóknir sem greina frá námi og störfum umsækjenda, ásamt skýrslu um ritsmíðar og rannsóknir, skal senda í tölvupósti til Branislav Bédi, verkefnisstjóra á alþjóðasviði, (branislav.bedi@arnastofnun.is) fyrir 15. júní 2022.

Nánari upplýsingar veitir verkefnisstjóri í gegnum tölvupóst eða í síma 525 4421.