Skip to main content

Fréttir

Íslenskukennari við Caen-háskóla í Normandí

Missing media item.

Staða íslenskukennara við háskólann í Caen er laus til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. september 2020. Ráðning er tímabundin til þriggja ára með möguleika á endurráðningu til jafnlangs tíma. Krafist er MA-prófs í íslensku eða tengdum greinum. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið kennararéttindanámi og/eða hafi reynslu af því að kenna íslensku sem annað eða erlent mál. Kunnátta í frönsku er nauðsynleg. Nær eingöngu er um íslenskukennslu að ræða á BA-stigi en umsækjendur þurfa einnig að geta kennt íslenskar bókmenntir og fjallað um íslenskt samfélag. Æskilegt er að umsækjendur hafi búið á Íslandi undanfarin ár. Mögulegt er að stunda framhaldsnám við skólann með kennslu.

Umsóknir, sem greini frá námi og störfum umsækjenda, ásamt skýrslu um ritsmíðar og rannsóknir, skal annaðhvort senda í tölvupósti á netfangið umsoknir@arnastofnun.is eða með bréfi til alþjóðasviðs Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, fyrir 15. maí 2020.

Nánari upplýsingar veitir verkefnisstjóri í gegnum tölvupóst (branislav.bedi@arnastofnun.is)  eða í síma (525 4421).