Skip to main content

Fréttir

Íslenski málbankinn tekinn í gagnið

Merki Íslenska málbankans

Opnað var fyrir nýtt vefsvæði á vegum Árnastofnunar 4. september síðastliðinn.

Íslenski málbankinn hefur það að markmiði að miðla málgögnum fyrir íslensku á öruggan og aðgengilegan hátt.

Allir geta sótt gögn í bankann en helstu markhópar eru fræðimenn og stúdentar í hug- og félagsvísindum sem rannsaka íslenskt mál og samfélag og forritarar sem vilja nálgast gagnasöfn, líkön og verkfæri sem tengjast máltækni.

Málbankinn er á vegum CLARIN-þjónustumiðstöðvar sem rekin er á Árnastofnun í samstarfi við sjö aðrar stofnanir:

  • Háskóla Íslands
  • Háskólann í Reykjavík
  • Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn
  • Þjóðskjalasafn Íslands
  • Íslenska málnefnd
  • Ríkisútvarpið ohf.
  • Almannaróm – miðstöð máltækni

CLARIN-þjónustumiðstöðin hefur starfað frá 2017.