Skip to main content

Fréttir

Í minningu Stefáns Karlssonar. Samkoma sunnudaginn 16. september

Dansk-íslenska félagið gengst fyrir samkomu í Norræna húsinu sunnudaginn 16. sept. kl. 14. Þar verður minnst Stefáns Karlssonar, handritafræðings. Jonna Louis-Jensen, Sigurgeir Steingrímsson og Steinunn Stefánsdóttir munu minnast mannsins, fræðimannsins og verka hans. Gamlir félagar frá Hafnarárum koma etv. fram og stúdentasöngvar verða sungnir. Sýnd verður kvikmynd Þrándar Thoroddsen frá Þorláksblóti í Kaupmannahöfn.