Þriðjudaginn 2. maí kom í heimsókn, á starfsstöð Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum við Laugaveg, hópur kennara og stúdenta úr Quebec-háskóla í Montréal.
Þau kynntu sér íslenskt mál og málstefnu en flest eru þau frönskumælandi Kanadamenn.