Skip to main content

Fréttir

Guðrún Nordal skipuð í embætti forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum


Menntamálaráðherra hefur að fenginni umsögn dómnefndar Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um prófessorshæfi umsækjenda og stjórnar stofnunarinnar skipað Guðrúnu Nordal í embætti forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum til fimm ára frá 1. mars nk.

Fjórar umsóknir bárust um embætti forstöðumanns.