Skip to main content

Fréttir

Guðrún Kvaran sæmd fálkaorðunni


Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær, 17. júní,  sæmdi forseti Íslands tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Guðrún Kvaran, stofustjóri Orðfræðisviðs hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fékk riddarakross fyrir störf í þágu orðfræða og íslenskrar tungu.
 


Á heimasíðu forseta Íslands má lesa meira um fálkaorðuna:  www.forseti.is/Forsida/Falkaordan