Skip to main content

Fréttir

Greinakall − Orð og tunga

Frestur til að skila greinarhandritum í 24. hefti Orðs og tungu (2022) er til 1. september 2021. Orð og tunga er ritrýnt tímarit sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefur út árlega. Birtar eru fræðilegar greinar, á íslensku, ensku og norrænum málum, sem lúta að málfræði og málnotkun en sérstök áhersla er lögð á greinar um orðfræði, orðabókafræði, nafnfræði, íðorðafræði og málræktarfræði.  

Hámarkslengd greina er 8.000 orð. Upplýsingar um skil á handritum, frágang o.s.frv. er að finna á vefsíðu tímaritsins. Á síðunni má einnig finna efnisyfirlit og útdrætti eldri árganga.  

Með því að senda inn handrit lýsir væntanlegur höfundur sig samþykkan því fyrirkomulagi að greinin verði birt samtímis á prenti og í rafrænni gerð.  

Vinsamlegast hafið samband við ritstjóra ef fleiri spurningar vakna. 

Ellert Þór Jóhannsson og Helga Hilmisdóttir ritstjórar 

ordogtunga@arnastofnun.is 

English