Þema ráðstefnunnar er tæknistutt nám og kennsla (e. CALL) fjölbreytilegra tungumála. Hún er haldin í samstarfi Vigdísarstofnunar – alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar, Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Ráðstefnan hefst 15. ágúst með vinnustofu um tæknistudda málakennslu, meðal annars með tilliti til tungumála frumbyggja og tungumála sem eru í útrýmingarhættu en í kjölfarið verður boðið upp á heilsdagsráðstefnu 16.–18. ágúst.
Sjá allar nánari upplýsingar á vefsíðu ráðstefnunnar.