Skip to main content

Fréttir

Fundað um kennslu í Norðurlandamálum í Reykjavík

Norræn samstarfsnefnd um kennslu í Norðurlandamálum erlendis, sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á aðild að, hélt árlegan haustfund sinn í Reykjavík 11. nóvember.

Við það tækifæri fundaði nefndin meðal annars með Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, Guðmundi Hálfdánarsyni, forseta Hugvísindasviðs, og Geir Sigurðssyni, forseta deildar erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda, um kennslu norrænna tungumála við háskólann.

Nefndin skoðaði einnig nýbyggingu húss Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Suðurgötu sem miðar vel og verður lokið áður en langt um líður.

Hlutverk nefndarinnar er að efla kennslu í Norðurlandamálum erlendis og styðja menningarkynningu og upplýsingamiðlun, sem norrænir sendikennarar og erlendir samstarfsmenn þeirra sinna við háskólastofnanir í norrænum málum og bókmenntum, bæði innan og utan Norðurlanda. 

 

Samstarfsnefndin fundar með rektor Háskóla Íslands.

 

 

Samstarfsnefndin ásamt rektor.