Stofnunin gefur út fréttabréf á ensku til að miðla upplýsingum um kennslu og rannsóknir í fornnorrænum og íslenskum fræðum, ráðstefnur og fundi, bækur og tímarit. Það kemur að jafnaði út tvisvar á ári og flytur fréttir bæði frá Íslandi og öðrum löndum. Fréttabréfið er sent stofnunum og fræðimönnum, hvarvetna í heiminum, sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur á póstfangaskrá sinni.
- Fréttabréf 2007 1 (á ensku) (50 k)
- Fréttabréf 2006 1 (á ensku) (53k)