Skip to main content

Fréttir

Fjölsótt sumarnámskeið í norrænum handritafræðum

Nemendur sumarnámskeiðs í handritafræðum 2026
Beeke Stegmann

Sumarskóli í handritafræðum fór fram 15.–25. júní 2026 í Eddu og var að þessu sinni afar fjölsóttur.

Þetta alþjóðlega námskeið, sem nú var haldið í 21. skipti, er samstarfsverkefni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Háskóla Íslands og Árnasafns við Kaupmannahafnarháskóla. Skólinn er haldinn til skiptis í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Þegar hann er í Reykjavík er skólinn haldinn í samstarfi við Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn.

Yfir áttatíu nemendur sóttu um inngöngu í námskeiðið í ár og næstum sextíu komust að. Nemendurnir koma m.a. frá Kanada, Brasilíu, Kína og flestum löndum Evrópu. Einnig tóku margir Íslendingar og nemendur HÍ þátt í námskeiðinu og kynntust þannig nemendum og fræðimönnum frá öðrum löndum. Kennarahópurinn var jafnfjölbreyttur, samsettur af rúmlega tuttugu sérfræðingum en margir þeirra komu til landsins sérstaklega til að halda fyrirlestra og vinnustofur við sumarskólann.

Hægt er að sækja námskeiðið allt að þrisvar sinnum og flestir nemendur koma oftar en einu sinni til að kafa dýpra í handritafræðin. Nemendum er skipt í þrjá hópa eftir reynslu og þjálfun: grunnnám, framhaldsnám og meistaranám (e. master class).

Kennslan er fjölbreytt og tekur mið af nýjustu þróun innan fræðanna. Í sumar var meðal annars boðið upp á fræðslu í skrift og styttingum, útgáfustefnu (e. editorial theory), tölvusetningu texta auk fræðslu um sögu pappírs, bókagerð á miðöldum og litarefni í handritum.