Skip to main content

Fréttir

Evrópsk ritgerðasamkeppni 2027: MA-ritgerðir ársins 2026 á sviði fjöltyngis og/eða málstefnu

Merki samtakanna European Federation of National Institutions for Language.
EFNIL

Samtökin EFNIL (European Federation of National Institutions for Language) standa árlega að meistararitgerðasamkeppni. Meginmarkmið EFNIL er að stuðla að og efla fjölbreytta málmenningu í álfunni og því koma einkum til álita ritgerðir sem varða málstefnu, fjöltyngi og margmála umhverfi eða tungumálakennslu. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2027. 

Nánari upplýsingar um form og frágang umsóknar, hvert hún skuli send o.s.frv. er að finna á síðunni: EFNIL’s Master’s Thesis Award - EFNIL – European Federation of National Institutions for Language

Möguleika á verðlaunum 2027 eiga þær ritgerðir sem lokið er við og hafa verið metnar af háskóla árið 2026 og fram til 15. janúar 2027. Ritgerðirnar geta snúist um hvaða tungumál sem er innan Evrópu, eitt eða fleiri. Ritgerðirnar mega vera skrifaðar á opinberu máli þeirra landa sem eiga aðild að EFNIL og íslenska er þar á meðal (ásamt ensku, frönsku, þýsku, dönsku o.m.fl.).

Miðað er við að veita allt að þrenn verðlaun. Veittar eru 1.500 evrur fyrir hverja verðlaunaritgerð, auk boðs um að halda fyrirlestur á ráðstefnu EFNIL í október 2027 og að fá birta grein í ráðstefnuritinu.

Þetta er í áttunda sinn sem keppnin er haldin. Verðlaunin 2026, fyrir ritgerðir ársins 2025, voru veitt í Flórens 23. október sl. Verðlaunahafar: Martina Magrin frá Università Ca’ Foscari di Venezia fyrir ritgerðina Lingue appese al muro. La promozione del plurilinguismo nello schoolscape a partire dal Progetto Lingua Madre del Centro Studi Immigrazione di Verona; Stef Accou frá KU Leuven fyrir ritgerðina TIPA: Typologically Informed Parameter Aggregation; Laura Moreno frá KU Leuven fyrir ritgerðina Access to Healthcare for Dutch-Speaking Patients in Brussels: A Comprehensive Investigation of Linguistic Barriers in a Multilingual Context.

Sigurvegarar ársins 2026.