Samtökin EFNIL (European Federation of National Institutions for Language) standa árlega að evrópskri samkeppni þar sem höfundar MA-ritgerða geta keppt um peningaverðlaun.
Ritgerðirnar eiga að vera innan efnissviðanna málnotkun, málstefna og margmála umhverfi. Ritgerðirnar geta snúist um hvaða tungumál sem er innan Evrópu, eitt eða fleiri. Ritgerðirnar mega vera skrifaðar á hvaða evrópskri þjóðtungu sem er (ritgerð á íslensku ætti sem sé jafna möguleika og ritgerð á t.d. ensku eða þýsku).
Sjá nánar um kröfurnar hér: http://efnil.org/master-thesis-award/master-thesis-award.
Möguleika á verðlaunum sem verða afhent haustið 2025 eiga þær ritgerðir sem lokið er 2024 og háskólar hafa tekið gildar og gefið einkunn fyrir árið 2024 eða fram til 15. janúar 2025. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2025.
Miðað er við að veita allt að þrenn verðlaun. Veittar eru 1.500 evrur fyrir hverja verðlaunaritgerð, auk boðs um að halda fyrirlestur og að fá birta grein um efni rannsóknarinnar.
Þetta er í fimmta sinn sem keppnin er haldin.
Verðlaunin 2024, fyrir ritgerðir ársins 2023, voru veitt í Búdapest í september sl. Verðlaunahafarnir voru Joana Pena-Tarradelles (Universitat Pompeu Fabra): „Are Coercive Language Policies Fair? A Normative Approach Building on the Multilingual Convergence Mode“; Lisza-Sophie Neumeier (Universität Wien): „Exploring the role of English in young adults’ lives in Austria: Second language engagement & enjoyment“; Welmoed Sjoerdstra (Rijksuniversiteit Groningen): „How to Teach Frisian in the Current Curriculum: Differentiation in the Frisian Course in the First Years of Secondary Education“.