Skip to main content

Fréttir

Bustarfell: saga jarðar og ættar

Út er komin bókin Bustarfell: saga jarðar og ættar. Í bókinni birtast í fyrsta sinn á prenti tvö handrit sem varðveitt eru á Bustarfelli og segja sögu þessa merka höfuðbóls og ættarinnar sem þar hefur búið frá 1532. Höfundar þeirra eru séra Einar Jónsson á Hofi (1853–1931) og Methúsalem Methúsalemsson bóndi á Bustarfelli (1889–1969). Rit Einars fjallar um sögu jarðarinnar og ættir Árna Brandssonar og Úlfheiðar Þorsteinsdóttur sem hófu búskap á jörðinni það ár, afkomendur þeirra og ábúendur til aldamótanna 1900. Í handriti Methúsalems er saga ábúenda og búskapar á Bustarfelli í öndvegi og miðlar hann þar einstæðum heimildum um gamla torfbæinn.

Finnur Ágúst Ingimundarson, starfsmaður á Árnastofnun, bjó handritin til útgáfu. Einnig ritar hann eftirmála þar sem saga Bustarfells er rakin eftir að frásögn Methúsalems sleppir, ágrip af sögu minjasafnsins, auk viðauka sem varða sögu jarðarinnar og ábúendur.

Þessi bók er ómetanlegur fengur öllum þeim sem láta sig ættfræði, þjóðhætti og sögu íslenska torfbæjarins varða. Jafnframt er hún dýrmætt framlag til héraðs- og menningarsögu Vopnafjarðar og sannkölluð fróðleiksnáma öllum þeim sem tengjast Bustarfellsætt, bænum og sögu hans á einn eða annan hátt.