Skip to main content

Fréttir

Bókin Kurteisleg kvæði og dýrlegar diktanir er komin út

Bók í ljósbláu og fjólubláu bandi. Titill bókarinnar er "Kurteisleg kvæði og dýrlegar diktanir: Bókmenntagreinar og handritamenning á sautjándu öld". Höfundur Þórunn Sigurðardóttir.
SSJ

Bókin Kurteisleg kvæði og dýrlegar diktanir. Bókmenntagreinar og handritamenning á sautjándu öld eftir Þórunni Sigurðardóttur, prófessor emeritus á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, er komin út hjá Árnastofnun. Bókin er gefin út í tilefni af sjötugsafmæli Þórunnar og í henni eru prentaðar átján greinar sem hún hefur birt í tímaritum og bókum á undanförnum árum þar sem sjónum er beint að sautjándu aldar bókmenntum og handritamenningu.

Í greinunum er lögð áhersla á félagslegt umhverfi skálda og viðtakenda bókmenntanna, tilurð þeirra, dreifingu og varðveislu, og samspil texta og umhverfis eða samhengi textanna við það samfélag sem þeir eru sprottnir úr. Sýnt er fram á að í bókmenntunum er hægt að fá vísbendingar um daglegt líf og tilfinningar, bæði skálda og samtímamanna þeirra, jafnt úr veraldlegum sem trúarlegum textum. Með sumum greinunum fylgja útgáfur á áður óbirtu efni. Greinunum er skipt í fimm kafla eftir meginviðfangsefni: Menntun og bókmenning; Handritamenning; Höfundareignun; Konur í bókmenntum síðari alda; Bókmenntagreinar á sautjándu öld. Ritstjóri bókarinnar er Rósa Þorsteinsdóttir. Bókin er 500 blaðsíður. Aftast er heimildaskrá auk nafnaskrár, handritaskrár og ritaskrár höfundar.