Skip to main content

Fréttir

Bókin Agnesarkver með fróðleik og kveðskap um heilaga Agnesi er komin út

Kápa bókarinnar Agnesarkver.
SSJ

Bókin Agnesarkver. Saint Agnes of Rome in Post-Medieval Icelandic Verse eftir Natalie M. Van Deusen, prófessor við Alberta-háskóla í Edmonton í Kanada, er komin út hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Þar er fjallað um heilaga Agnesi sem talið er að hafi látið lífið aðeins 13 ára gömul í umfangsmiklum ofsóknum á hendur kristnum mönnum í Róm um 303–304. Hún mun hafa neitað að giftast heiðnum syni háttsetts embættismanns og haldið fast við trú sína og sannfæringu þrátt fyrir hótanir og misþyrmingar.

Saga Agnesar var þýdd á norrænu í kaþólskum sið og áhugi á henni dvínaði ekki á Íslandi við siðbreytinguna því að fjögur kvæði voru ort um Agnesi eftir siðaskipti. Þetta eru Vísur af heilagri jómfrú Agnesi; Rímur af Agnesi píslarvotti eftir sr. Eirík Hallsson (1614–1698); Agnesarvísa og Agnesarkvæði eftir Þorvald Magnússon (1670–1741). Af þessum kvæðum var það síðastnefnda vinsælast sem sjá má af því að kvæðið er varðveitt í fjölda handrita en það var líka sungið og á síðari hluta 20. aldar var enn til fólk sem kunni bæði lagið og textann eins og fram kemur á vefsíðunni ismus.is.

Í Agnesarkveri er greinargott yfirlit yfir heimildir um Agnesi og sögu hennar auk þess sem texti kvæðanna fjögurra er birtur ásamt inngangi og fræðilegri umfjöllun. Myndir sem tengjast sögu Agnesar prýða bókina og henni fylgir nafnaskrá. Ritstjórar bókarinnar eru Annette Lassen og Margrét Eggertsdóttir.

Bókin er til sölu í Eddu og í helstu bókabúðum á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er hægt að panta hana á netinu hjá Pennanum Eymundsson.