Skip to main content

Fréttir

Barnamenningarhátíð í Eddu

Barn að mála refil.

Dagana 20.–26. apríl setja börn mark sitt á menningarlíf borgarinnar en þá stendur Barnamenningarhátíð í Reykjavík yfir. Hátt í 10 þúsund börn taka þátt í hátíðinni og þar á meðal eru nemendur 6. bekkjar í Melaskóla sem sýna verk sín í safnkennslustofu á 1. hæð í Eddu.  

Sýning barnanna

Þema Barnamenningarhátíðar í ár er „samkennd og samfélag“. Til sýnis verður m.a. myndband sem nemendur unnu upp úr norrænni goðafræði ásamt um níu metra löngum refli. Á honum eru sýndir atburðir úr ævi Snorra Sturlusonar og fá sýningargestir þannig innsýn inn í samfélag Sturlungaaldar.  

Sýningin verður opnuð kl. 14 föstudaginn 24. apríl og stendur yfir fram á sumar.

Völvuleiðsögn fyrir unga gesti

Í tilefni Barnamenningarhátíðar verður einnig boðið upp á sérstaka leiðsögn fyrir unga sýningargesti laugardaginn 25. apríl. Safnkennari Árnastofnunar mun kalla til sín völvu sem leiðir unga gesti inn í heim handritanna kl. 13, 13.30, 14 og 14.30. 

Nálgast má alla viðburði hátíðarinnar á barnamenningarhatid.is

Sýningin Heimur í orðum er opin alla daga nema mánudaga kl. 10–17.

Sjáumst í Eddu!