Skip to main content

Fréttir

Bara að nefna það – nafnasamkeppni um hús íslenskunnar

Tölvuteiknuð mynd af Húsi íslenskunnar með orðunum "Bara að nefna það" ofan á

Frestur til að senda inn tillögu í samkeppni um nafn á hús íslenskunnar er nú liðinn.

Húsið mun hýsa fjölbreytta starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Ríkið mun fá húsið afhent nú í febrúar en það verður formlega opnað 19. apríl næstkomandi.

Áður en að því kemur þarf að finna húsinu nafn og ákváðu menningar- og viðskiptaráðuneytið, Árnastofnun og Háskóli Íslands að efna til nafnasamkeppni meðal almennings. Frestur til að taka þátt rann út 1. mars en fjölmargar tillögur bárust.

Samkeppnin stendur yfir út febrúar og í kjölfarið mun nefnd fara yfir tillögurnar og velja þá bestu. Nafnið verður svo kynnt við formlega opnun hússins 19. apríl og sigurvegarar nafnasamkeppninnar hljóta viðurkenningu.

,,Það hillir undir að íslenskan og okkar dýrmætasti menningararfur fái langþráð og verðskuldað lögheimili. Hús íslenskunnar markar vatnaskil fyrir starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Með húsinu skapast loksins aðstaða til þess að sýna okkar merkustu handrit sem eru samofin sjálfsmynd okkar sem þjóðar. Þetta verður sannkallað hús þjóðarinnar, því hvet ég sem flesta til þess að taka þátt í nafnasamkeppni fyrir hús íslenskunnar,‘‘ sagði Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.