Skip to main content

Fréttir

Ársfundur verður haldinn 25. maí

 

Ársfundur Stofnunar Árna Magnússonar verður haldinn í Kötlusal Hótel Sögu, 25. maí, klukkan 8.15-10.00. Allir velkomnir.

Skráning fer fram á heimasíðu stofnunarinnar til hádegis 24. maí:

http://www.arnastofnun.is/page/arsfundur2016_skraning

Árbítur borinn fram í Kötlusal kl. 8.

Dagskrá hefst kl. 8.15.

 

Dagskrá:

Þorsteinn Pálsson, formaður stjórnar
Ávarp

Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Árnastofnunar
Starfsemi stofnunarinnar árið 2015

Ragnheiður Ríkharðsdóttir alþingismaður
Varðveisla menningararfleifðar á stafrænu formi

Bjarki Sveinbjörnsson, forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands
„... hefurðu heyrt þessa sögu?“

Sigríður Rún, grafískur hönnuður
Líffærafræði leturs

Vilhjálmur Þorsteinsson hugbúnaðarhönnuður
Skraflað og málgreint með Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls

Guðrún Ingólfsdóttir, sjálfstætt starfandi fræðimaður
Á hverju liggja ekki vorar göfugu kellíngar. Bókmenning íslenskra kvenna frá miðöldum itl 1730.

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra
Ávarp

Að dagskrá í Kötlusal lokinni verður gengið með mennta- og menningarmálaráðherra ofan í húsgrunn þann sem búið er að grafa fyrir Hús íslenskunnar.

 

Starfsfólk Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.