Skip to main content

Fréttir

Ársafmæli Eddu

Edda var vígð síðasta vetrardag 19. apríl 2023 við hátíðlega athöfn. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, kynnti nafnið á húsinu og afhenti Árnastofnun og Háskóla Íslands lyklana að Eddu.

Daginn eftir, sumardaginn fyrsta, var opið hús í Eddu og almenningi boðið að koma og skoða bygginguna áður en Árnastofnun og Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands fluttu í húsið. Dagskráin hófst með því að Kvæðabarnafjelag Laufásborgar flutti rímur og vakti sérstaka athygli hversu einbeittir og duglegir kvæðamenn voru þrátt fyrir ungan aldur. Boðið var upp á leiðsögn um húsið, fræðimenn stofnunarinnar og kennarar í íslensku héldu fyrirlestra og rithöfundar fjölluðu um verk sín. Íslenskunemar skrifuðu ljóð eftir pöntun og hljóðrituðu nöfn og nemendur í íslensku sem öðru máli sýndu myndasögur sem þeir höfðu gert. Jakob Birgisson flutti gamanmál, Pétur Húni kvæðamaður kvað rímur á ýmsum stöðum í húsinu og Una Torfadóttir tónlistarkona lék fyrir gesti. Kór Neskirkju, undir stjórn Steingríms Þórhallssonar, söng fyrir gesti.

Áætlað er að um tólf til fjórtán þúsund manns hafi heimsótt Eddu þennan fagra sumardag.

Meðfylgjandi eru myndir frá vígslunni og opnu húsi í fyrra.

 

Myndir: Sigurður Stefán Jónsson