Skip to main content

Fréttir

Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II

Ný bók
frá
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR
Í ÍSLENSKUM FRÆÐUM

ÆTTARTÖLUSAFNRIT
SÉRA ÞÓRÐAR JÓNSSONAR Í
HÍTARDAL
I–II

Guðrún Ása Grímsdóttir annaðist útgáfuna. 1012 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
ISBN I–II: 978-9979-654-02-5
I: 978-9979-654-03-2
II: 978-9979-654-04-9



Í byrjun nóvember kemur út hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal í tveimur bindum, samtals 1012 bls. Guðrún Ása Grímsdóttir annast útgáfuna. Smásöluverð bindanna beggja, sem bundin eru í harðspjöld og í kápu, er kr. 12.900. Þeim sem gerast áskrifendur að þessu verki fyrir 3. nóvember n.k. gefst kostur á að eignast það fyrir kr. 9.900.

Vinsamlegast pantið bókina á netfanginu: thorunnr [hjá] hi.is fyrir 3. nóvember n.k., ef áskriftar er óskað.

Meira um Ættartölusafnrit séra Þórðar Jónssonar í Hítardal I-II.