Skip to main content

Fréttir

10. hefti Orðs og tungu komið út. Þema: Orðabækur og tímans tönn

                                     

Út er komið 10. hefti tímaritsins Orð og tunga sem gefið er út af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Í heftinu eru greinar sem tengjast orðfræði og orðabókafræði. Auk þess birtast þar umsagnir um bækur, bókafregnir og fréttir af þingum.

Þeir sem hafa áhuga á að eignast heftið eða gerast áskrifendur að tímaritinu geta snúið sér til Kára Kaaber (s. 525 4443).