Skip to main content

Styrkir til rannsóknardvalar við Árnastofnun í Reykjavík eða Árnasafn við Kaupmannahafnarháskóla

Styrkir til rannsóknardvalar við Árnastofnun í Reykjavík

Application form in English

Stjórnvöld á Íslandi og í Danmörku hafa gert samning um að efna til þriggja ára áætlunar (2026–2028) til að styrkja alþjóðlegar rannsóknir á handritum í safni Árna Magnússonar, sem varðveitt eru á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og í Árnasafni við Kaupmannahafnarháskóla.

Markmiðið er að efla nýliðun og því verða styrkir til fræðimanna á fyrri hluta ferilsins í forgangi, þar á meðal til doktorsnema og nýdoktora sem starfa utan Íslands og Danmerkur til að rannsaka handrit í safni Árna Magnússonar hvort sem er í Reykjavík eða í Kaupmannahöfn. Veittir eru styrkir til eins til sex mánaða rannsóknardvalar í Reykjavík eða Kaupmannahöfn. Upphæð styrksins er 600.000 kr.

Við mat á umsóknum er tekið jafnt tillit til fræðilegs bakgrunns umsækjanda og rannsóknarefnisins. Miðað er við að skoðun á einu eða fleiri handritum sé grunnþáttur í öllum þeim verkefnum sem hljóta styrk.

Sem sakir standa er aðeins hægt að sækja um dvöl hjá Árnastofnun í Reykjavík

Umsóknarfrestur er til 1. júní 2026.
 


Hámarks stærð 8 MB.
Leyfðar skráargerðir: gif, jpg, png, bmp, eps, tif, pict, psd, txt, rtf, html, odf, pdf, doc, docx, ppt, pptx, xls, xlsx, xml, avi, mov, mp3, ogg, wav, bz2, dmg, gz, jar, rar, sit, svg, tar, zip.
Vinsamlega skráðu upphafs- og lokadagsetningu.

Hámarks stærð 8 MB.
Leyfðar skráargerðir: gif, jpg, png, bmp, eps, tif, pict, psd, txt, rtf, html, odf, pdf, doc, docx, ppt, pptx, xls, xlsx, xml, avi, mov, mp3, ogg, wav, bz2, dmg, gz, jar, rar, sit, svg, tar, zip.
Vinsamlega skráðu nafn, stöðu, netfang og símanúmer hjá einum eða fleiri meðmælendum.