Skip to main content

Flettibók: Margrétar saga

Verndardýrlingur kvenna í barnsnauð

Heilög Margrét var verndardýrlingur kvenna í barnsnauð og hefur drekasögnin líklega verið kveikjan að því hlutverki. Þannig áttu börn að komast heilbrigð og lifandi úr móðurkviði eins og Margrét úr kviði drekans. Í sögulok er Margrét líflátin. Skömmu áður fer hún með bæn þar sem meðal annars segir:

„Enn bið eg, drottinn, sá er ritar píslarsögu mína eða kaupir þá bók, fylltu þá af helgum anda. Og í því hýsi er bók sú er inni, verði þar eigi fætt dautt barn né lama.”

Í handritinu er einnig að finna bænir og töfraformúlur. Þar er alkunn töfraformúla, SATOR AREPO TENET OPERA ROTAS sem á að lesa þrisvar yfir lendum konunnar og gera þrjú krossmörk í hvert sinn. Þar á eftir fylgir bæn sem kölluð hefur verið „góða bænin” eða bæn heilags Leonardus, en víða var algengt að heita á hann við barnsburð.

Á eftir bæninni kemur ný fyrirsögn „Kvenna lausn” en þar eru leiðbeiningar um notkun bókarinnar, óljósar þó. Af þeim má ráða að bókin, eða hluti hennar, hafi verið bundinn við hægra læri konunnar. Fleiri handrit í litlu broti með Margrétar sögu og skyldu efni hafa varðveist og væntanlega verið notuð á sama hátt og AM  431 12mo.

Á öftustu blaðsíðu handritsins stendur:

Lengi hefur þú skrifað þessa sögu, Jón strákur Arason. Ekki má þetta skrif heita, það er mismæli fyrir mig, heldur er þetta krabb og illa krabbað. Biðjið sem áður fyrir Jóni Arasyni, þeir sem söguna lesa. Geymi oss guð öll saman og jungfrú sacnta María mín að ílífu. Amen.

Strákurinn Jón Arason mun ekki vera biskupinn heldur vestfirskur samtíðarmaður hans. Þeir bræður Jón og Tómas Arasynir ásamt Ara Jónssyni föður þeirra voru afkastamiklir skrifarar. Ari lögmaður Jónsson, sonur biskups, er þó talinn hafa skrifað eitt Margrétarsöguhandrit, AM 433 c 12mo.