Skip to main content

Flateyjarbók

Flateyjarbók er stærst allra íslenskra skinnbóka, 202 blöð skrifuð undir lok 14. aldar og 23 blöð sem aukið var í bókina á síðari hluta 15. aldar. Í formála hennar segir að bókina eigi Jón Hákonarson og að hana hafi ritað Jón prestur Þórðarson og Magnús prestur Þórhallsson og að sá síðarnefndi hafi lýst (myndskreytt) hana alla. Jón Hákonarson (f. 1350) var auðugur bóndi og bjó í Víðidalstungu í Húnavatnssýslu, en fátt er vitað um skrifarana tvo. Á öðrum stað í bókinni segir Magnús Þórhallsson að hún sé rituð 1387, en hann hefur síðan aukið ofurlitlu við hana næstu sjö árin. Á síðara hluta 15. aldar mun bókin hafa verið í eigu Þorleifs Björnssonar hirðstjóra á Reykhólum, sem jók í hana blöðunum 23, en eftir hans dag eignaðist sonarsonur hans, Jón Björnsson í Flatey, handritið. Jón gaf það síðar sonarsyni sínum Jóni Finnssyni, sem einnig bjó í Flatey, og er bókin kennd við heimkynni þeirra feðga.
 
Meginefni Flateyjarbókar er sögur af Noregskonungum. Þar eru fyrirferðarmestar Ólafs saga Tryggvasonar (d. 1000) – sérstök gerð þeirrar sögu sem er nefnd hin mesta, Ólafs saga helga (d. 1030), Sverris saga (d. 1202) og Hákonar saga gamla (d. 1263). Í Ólafs sögu Tryggvasonar hinni mestu er saga þessa konungs eftir Snorra Sturluson notuð sem uppistaða, en miklu efni sem eitthvað varðaði ævi konungsins og kristniboð hans ofið inn í. Þar á meðal eru Færeyinga saga, Orkneyinga saga, Fóstbræðra saga og Grænlendinga saga, ein elsta heimild um fund Vínlands sem hvergi er varðveitt annars staðar.

Aftast í Flateyjarbók er annáll sem spannar tímabilið frá því að Júlíus Sesar varð „einvaldshöfðingi yfir öllum heimi“ og fram til ársins 1394, en þá var „hallæri mikið til kostar og skreiðar nær um allt land, vor kalt, grasvöxtur lítill, fellir nokkur“.

Búningur Flateyjarbókar er slíkur, einkum þó lýsingar, að einstakt er þegar um söguhandrit er að ræða sem er fremur ætlað til skemmtunar og fróðleiks en nytsemdar í andlegum eða veraldlegum efnum.

​Jón Finnsson í Flatey gaf Brynjólfi Sveinssyni biskupi Flateyjarbók 1647 en biskup sendi hana Friðriki þriðja Danakonungi árið 1656. Fullar þrjár aldir var Flateyjarbók einn helsti kjörgripur Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn, en gjafahringnum var lokað síðasta vetrardag 1971, þegar Helge Larsen menntamálaráðherra Dana afhenti hana Gylfa Þ. Gíslasyni menntamálaráðherra með orðunum „Vær så god! Flatøbogen“.