Nöfn
Nafnfræði er fræðigrein sem fæst við rannsóknir á nöfnum með áherslu á orðsifjar, uppruna og merkingu nafna en einnig beygingar þeirra. Á menningarsviði eru stundaðar rannsóknir í nafnfræði og unnið að margvíslegum verkefnum sem tengjast örnefnum, m.a. í samstarfi við Landmælingar Íslands og Þjóðskrá Íslands. Örnefni á við vissa einingu í landslagi eða landsvæði, þ.e. merkir nafn á einhverjum stað. Örnefnafræði er sú undirgrein nafnfræðinnar sem fæst við skýringar á örnefnum og hvernig þau tengjast staðháttum, sögu og menningu íbúanna. Örnefnasafn stofnunarinnar, sjá nafnið.is, er náma fyrir rannsóknir á örnefnum.
Rannsóknarverkefni og birtingar
Nafnið.is
Verkefnið snýst um að koma örnefnasafni stofnunarinnar á stafrænt form. Enn fremur verður búinn til leitarbær gagnagrunnur sem mun verða opinn almenningi.