Skip to main content

Viðburðir

Ritgerð um leiki – afmælismálþing Góðvina Grunnavíkur-Jóns

4. maí
2024
kl. 13.30–16

Fyrirlestrasal Eddu
Arngrímsgötu 5
107 Reykjavík
Ísland

Þrjátíu ára afmælismálþing Góðvina Grunnavíkur-Jóns verður haldið laugardaginn 4. maí 2024 kl. 13.30–16.00 í fyrirlestrasal Eddu, Arngrímsgötu 5.

Á málþinginu verður fjallað um Ritgerð um leiki sem var gefin út í fyrsta sinn í heild sinni í fyrra af Góðvinum Grunnavíkur-Jóns en leikjaritgerðin er hluti af íslensk-latneskri orðabók Jóns Ólafssonar úr Grunnavík (1705–1779) í handritinu AM 433 fol. Í þessari óútgefnu orðabók er oft og tíðum að finna mjög mikilvægan fróðleik og við orðið leikur í orðabókinni er löng og ómetanleg lýsing á íslenskum leikjum. Ritgerðin er óviðjafnanleg heimild um leiki barna og fullorðinna á 18. öld.

Nokkrir piltar úr fimleikafélaginu Gerplu undir stjórn Axels Ólafs þjálfara síns munu sýna ýmsa leiki úr leikjaritgerðinni. Sumir þeirra eru einfaldir í framkvæmd en aðrir aðeins á færi fimleikafólks. Ingibjörg Björnsdóttir, fyrrverandi skólastjóri Listdansskóla Þjóðleikhússins, mun kynna stuttlega leikina sem sýndir verða.

Góðvinir Grunnavíkur-Jóns er félagsskapur sem stofnaður var í Reykjavík árið 1994. Félagið hefur að markmiði að breyta þeirri mynd sem menn hafa af Jóni Ólafssyni úr Grunnavík og standa vörð um fræðimannsheiður hans með því að kynna hann, æviferil hans og störf. Sjá nánar á vef félagsins.

 

Dagskrá

Fimleikapiltar frá Gerplu undir stjórn Axels Ólafs munu sýna nokkra leiki frá átjándu öld úr riti Jóns.

Ingibjörg Björnsdóttir kynnir leikina.

Svavar Sigmundsson: Hver var Grunnavíkur-Jón?

Leikir: Einfaldir leikir

Guðrún Kvaran: Orðabókarstörf Jóns úr Grunnavík og ritgerð um leiki.

Leikir: Erfiðari leikir

Afmæliskaffi

Una Margrét Jónsdóttir: „Horfumst í augu grámyglur tvær“

Leikur: Ríða til Róms

Sólveig Hrönn Hilmarsdóttir: Glímt við latínutexta Jóns úr Grunnavík

Leikir: Bitaleikir

Pétur Gunnarsson: Sjáandinn Jón Ólafsson

 

Kynnir: Guðvarður Már Gunnlaugsson

2024-05-04T13:30:00 - 2024-05-04T16:00:00