Skip to main content

Events

Málþing um íslensk handrit í láni frá Svíþjóð

Reglulega er skipt um handrit á sýningunni Heimur í orðum. Fimm íslensk handrit úr sænskum söfnum verða til sýnis á tímabilinu 12. maí til 8. nóvember.

Tvö koma úr Háskólabókasafninu í Uppsölum: Uppsala-Edda, sem er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu, og Grettis sögu handrit frá 15. öld. Hin þrjú koma úr Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi: Íslenska hómilíubókin, sem er eitt elsta handrit sem varðveist hefur frá Íslandi; Bergsbók, glæsilegt handrit sem geymir sögur konunganna Ólafs Tryggvasonar og Ólafs helga auk kveðskapar; Codex Sparfvenfeldianus, sem er merkilegt edduhandrit frá 17. öld.

Dagskrá í Eddu

Í tilefni af handritaskiptunum verður efnt til dagskrár í Eddu 12. maí kl. 14–16.

Ávörp flytja Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Jessica Olausson, staðgengill sendiherra Svía á Íslandi, og Guðrún Nordal forstöðumaður.

Svanhildur Óskarsdóttir rannsóknarprófessor segir frá láni á íslenskum handritum frá Svíþjóð og erindi flytja Mats Malm, prófessor og ritari Sænsku akademíunnar, Emma Hagström Molin dósent og Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor.

Viðburður á Facebook

2026-05-12T14:00:00 - 2026-05-12T16:00:00