Skip to main content

Events

Handritamálið nýja

3. June
2021
kl. 17–19

Málþing Sagnfræðingafélags Íslands, Handritamálið nýja, verður haldið í Safnaðarheimili Neskirkju við Hagatorg í Reykjavík fimmtudaginn 3. júní kl. 17.

Á málþinginu verða ýmis álitamál rædd, svo sem aðgengi að handritunum og varsla þeirra. Menntamálaráðherra flytur ávarp og fimm fræðimenn munu halda erindi. Í kjölfarið fara fram pallborðsumræður.

Erindi halda:

- Bragi Þorgrímur Ólafsson, fagstjóri handritasafns Landsbókasafns Íslands - háskólabókasafns.

- Gottskálk Jensson, rannsóknardósent við Kaupmannahafnarháskóla og gestaprófessor við Háskóla Íslands.

- Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

- Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

- Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.

- Njörður Sigurðsson, sviðsstjóri skjala- og upplýsingasviðs Þjóðskjalasafns Íslands.

2021-06-03T17:00:00 - 2021-06-03T19:00:00