Skip to main content
Human resources
Back to all
Matteo Tarsi

Matteo Tarsi

Handritasvið
doktorsnemi
Laugavegur

Heiti doktorsverkefnis: Tökuorð og innlend orð í forn- og miðíslensku

Það er grundvallaratriði íslenskrar hreintungustefnu að forðast tökuorð og velja (eða smíða) innlend orð í þeirra stað. Þetta veldur því að oft myndast samheitapör í orðaforðanum, þar sem orð smíðuð af innlendum efnivið og tökuorð lifa saman hvor við hliðina á öðrum og keppa hvor við önnur. Svo er aftur komið á jafnvægi í orðaforðanum annaðhvort með því að fella úr notkun tökuorðið eða innlenda orðið eða með því að aðgreina þau á vissan hátt (t.d. að því er varðar formlega og óformlega málnotkun). Íslensk hreintungustefna er talin byrja um 1600 eða um það leyti er Arngrímur Jónsson lærði skoraði á samlanda sína að nota mál forfeðra sinna í tali og riti fremur en taka að láni orð og orðtök frá Dönum og Þjóðverjum. Í ritverkum fyrri alda eru mörg dæmi um samheitapör. Meginmarkmið rannsóknarinnar er að athuga hvernig samheitapör mynduð af innlendum orðum og tökuorðum haga sér í ólíkum textategundum á forn- og miðíslenskum tíma. Niðurstöður rannsóknarinnar eiga ekki aðeins erindi við Íslendinga, heldur einnig við alla þá sem áhuga hafa á íslensku máli og menningu erlendis, ekki síst þá sem fást við málræktarfræði og áhrif eins tungumáls á annað.

Leiðbeinendur eru Jón Axel Harðarson, prófessor við Háskóla Íslands, Veturliði Óskarsson, prófessor við Háskólann í Uppsölum, og Ari Páll Kristinsson, rannsóknaprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.