Skip to main content
Human resources
Back to all
Dagbjört Guðmundsdóttir

Dagbjört Guðmundsdóttir

Orðfræðisvið
doktorsnemi / starfar við rannsóknarverkefnið Íslenskt unglingamál
Laugavegur 13

Heiti doktorsverkefnis: Breytileiki í setningagerð íslensks unglingamáls: Áhrif ílags og viðhorfa

[Syntactic variation in Icelandic youth language: Effects from input and attitudes]

Meginviðfangsefni þessarar rannsóknar er að kortleggja tilbrigði í íslensku unglingamáli og varpa ljósi á þau atriði sem hafa áhrif á þann breytileika. Leitast verður við að skýra hlutverk ílags (e. input) í því samhengi og þá sérstaklega hvaða áhrif aukið stafrænt ílag á ensku hefur, til dæmis vegna tilgátna um að aukið málsambýli geti hraðað málbreytingum sem þegar eru hafnar. Þá verður sérstaklega horft til viðhorfa unglinga til íslensku og ensku þar sem þekkt er að viðhorf geti haft víðtæk áhrif á framgang málbreytinga, ekki síst í málsambýlisaðstæðum. Verkefnið er unnið innan rannsóknarverkefnisins Íslenskt unglingamál: Rannsókn á samskiptaaðferðum í raungögnum sem stýrt er af Helgu Hilmisdóttur, rannsóknarlektor á Árnastofnun. Byggt verður á samræðugögnum við 176 íslenska unglinga á aldrinum 13–18 ára en íslenskt unglingamál hefur hvorki verið aðalrannsóknarefni heils málfræðirannsóknarverkefnis né verið kannað áður með þessum hætti. Einnig verður unnið með gögn úr öndvegisverkefninu Greining á málfræðilegum afleiðingum stafræns málsambýlis sem stýrt er af Sigríði Sigurjónsdóttur og Eiríki Rögnvaldssyni en í rannsókn minni verða notaðar niðurstöður úr vefkönnun með um 2000 þátttakendum á aldrinum 3–98 ára og úr nákvæmari viðtölum við um 300 manna úrtak úr þátttakendum vefkönnunarinnar.

Leiðbeinandi er Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í íslenskri málfræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.