Mathias Nordvig, doktorsnemi við háskólann í Árósum, heldur erindi um sambandið milli Óðins og Freys í Ynglinga sögu á fimmtudag, 8. desember, kl. 17 í Árnagarði, stofu 101. Fyrirlesturinn verður á ensku. "What is Óðinn actually doing in Ynglinga saga?"