Skip to main content

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast umsýslu með styrkjum menningar- og viðskiptaráðuneytis til stúdenta frá erlendum háskólum til íslenskunáms við Háskóla Íslands. Veittir eru um það bil tólf styrkir árlega fyrir BA-nám í íslensku sem öðru máli. Nemendur verða að hafa lokið a.m.k. einu ári á háskólastigi.

Sjá nánari upplýsingar um styrkinn og skráningarblað á ensku.