Örnefnanefnd
Netfang örnefnanefndar er: ornefnanefnd@hi.is
Örnefnanefnd starfar á grundvelli laga nr. 35/1953 um bæjanöfn o.fl.
með síðari breytingum, sbr. og 4. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, og í
samræmi við reglugerð nr. 136 um störf örnefnanefndar frá 22. febrúar
1999.
Verkefni örnefnanefndar
Verkefni örnefnanefndar eru skv. lögum og reglugerð þessi:
- að taka við tilkynningu um nafn nýbýlis og fjalla um það til samþykktar eða synjunar og senda samþykkt nafn til þinglýsingarstjóra;
- að fjalla um beiðni um breytingu á nafni býlis til samþykktar eða synjunar og senda samþykkta nafnbreytingu til þinglýsingarstjóra;
- að fjalla um beiðni sveitarstjórnar um lögfestingu á nafni á nýju þéttbýli eða þorpi, sem myndast hefur í landi jarðar eða jarða, til samþykktar eða synjunar og senda samþykkt nafn til þinglýsingarstjóra;
- að úrskurða hvaða örnefni skuli sett á landakort sem gefin eru út á vegum Landmælinga Íslands eða með leyfi þeirra, sé ágreiningur eða álitamál um það efni og því hafi verið skotið til nefndarinnar;
- að úrskurða um nýtt götunafn eða sambærilegt örnefni innan sveitarfélags, hafi risið ágreiningur um efnið og honum hafi verið skotið til nefndarinnar;
- að úrskurða um nýtt eða breytt nafn húss í kaupstað, kauptúni eða þorpi, hafi risið ágreiningur um efnið og honum hafi verið skotið til nefndarinnar;
- að veita umsögn um fyrirhugað nafn á nýju sveitarfélagi eða nafnbreytingu og um þau nöfn sem greiða skal atkvæði um ef könnun er gerð á viðhorfi íbúa sveitarfélags til nafns þess.
Nefndarmenn
Þórunn Sigurðardóttir, formaður (sími 525 4016, tölvupóstur thsig@hi.is)
Hallgrímur J. Ámundason, ritari (sími 525 5159, tölvupóstur hja@hi.is)
Danfríður Skarphéðinsdóttir, varaformaður
Margrét Jónsdóttir, áheyrnarfulltrúi Íslenskrar málnefndar
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum annast skrifstofuhald fyrir örnefnanefnd.
Heimilisfang örnefnanefndar
Örnefnanefnd
Neshaga 16
107 Reykjavík
Sími: 525 5157
Fax: 562 2699
Netfang: ornefnanefnd@hi.is