gullhamrar
Orðið gullhamar er nú kunnuglegast í fleirtölumynd í orðasambandinu að slá e-m gullhamra í merkingunni 'skjalla e-n, fara með fagurgala við e-n' (OM). Orðið eitt og sér segja fræðimenn að merki 'hamar úr gulli; hamar notaður við gullsmíðar'.
Í fornu máli kemur einu sinni fyrir orðalagið að láta ganga gullhamarinn sem orðabækur þýða 'að lofa gulli og grænum skógum' en virðist af samhenginu eins geta merkt 'hæla, hrósa upp í hástert' eins og fram kemur í þessari vísu sem að líkindum er frá 17. öld:
Eftirfarandi setning er úr riti frá miðri 17. öld:
Engin dæmi styðja merkinguna 'hamar úr gulli; hamar notaður við gullsmíði'. Orðið virðist bundið orðatiltækjunum að slá e-m gullhamra(na), láta gullhamarinn ganga.
Ekki er ólíklegt að orðalagið eigi sér erlenda fyrirmynd, sbr. að í dönsku kemur fyrir orðið guldhammer í orðatiltæki sem reyndar er horfið úr málinu: Med en guldhammer lukkes tit den stærkeste jærnport op. Orðin guldkrog, guldkugle og guldnøgle eru (eða voru) einnig notuð í föstum samböndum eða orðatiltækjum sem lúta að mútum og fégjöfum.
Heimildir

Fagurgalinn blakar blítt,
blekkir einfaldan,
gullhamarinn gengur títt,
so glóir á hann.
blekkir einfaldan,
gullhamarinn gengur títt,
so glóir á hann.
(JSamsKD II, 241)
Eftirfarandi setning er úr riti frá miðri 17. öld:
- En það er örðugt einstígi að ganga á sjálfan sig og sjá sín lýti, einkum og helzt nær manni gengur vel og lukkan slær honum gullhamar, ... .
- gullhamar ... að slá manni gullhamra, verbis splendidis aliqvem extollere, þ.e. fara um hann fögrum orðum.
Engin dæmi styðja merkinguna 'hamar úr gulli; hamar notaður við gullsmíði'. Orðið virðist bundið orðatiltækjunum að slá e-m gullhamra(na), láta gullhamarinn ganga.
Ekki er ólíklegt að orðalagið eigi sér erlenda fyrirmynd, sbr. að í dönsku kemur fyrir orðið guldhammer í orðatiltæki sem reyndar er horfið úr málinu: Med en guldhammer lukkes tit den stærkeste jærnport op. Orðin guldkrog, guldkugle og guldnøgle eru (eða voru) einnig notuð í föstum samböndum eða orðatiltækjum sem lúta að mútum og fégjöfum.
Heimildir
- Ritmálssafn Orðabókar Háskólans
- Halldór Halldórsson. Íslenzkt orðtakasafn. 3. útgáfa aukin og endurskoðuð. Almenna bókafélagið 1991. [Fyrri útgáfur: 1. útg. I-II 1968, 1969; 2. útgáfa aukin I-II 1978, 1980]
- Jón G. Friðjónsson. Mergur málsins - Íslensk orðatiltæki, uppruni, saga og notkun. Örn og Örlygur. Bókaklúbbur 1993.
- Íslensk orðabók. Þriðja útgáfa, aukin og endurbætt. Edda 2002.
- Ordbog over det danske Sprog. Syvende Bind. GRAN - HERPAA. København 1925.
Gunnlaugur Ingólfsson
ágúst 2003
ágúst 2003