Rafræn málsöfn

Stofnunin ræður yfir allnokkrum rafrænum málsöfnum. Þar má nefna söfn með samfelldum textum, jafnvel heilum verkum, þar sem hægt er að leita að tilteknum orðum eða orðmyndum eða sem þannig er búið um að hægt er að skoða dæmi um orðmyndir sem þar koma fyrir. Einnig eru söfn með ýmiss konar skrám yfir tiltekin atriði í máli sem hægt er að leita í, t.d. að beygingu orða eða ýmiss konar föstum orðasamböndum. Loks hefur verið búið um stærstan hluta af ritmálssafni Orðabókar Háskólans í rafrænu gagnasafni.

Ýmis rafræn málsöfn eru aðgengileg almenningi, í heild eða að hluta, á vefsetri stofnunarinnar.